Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar samþykkti á fundi 24.3.2015 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir rannsóknarborholur í Eldvörpum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og umhverfisskýrslu, skv. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006. Skipulagssvæðið er við Eldvörp og nær til 5 rannsóknarborhola.
Tillagan fjallar um staðsetningu borhola, aðkomu, skilmála og umhverfisáhrif. Deiliskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu verður aðgengileg á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar og heimasíðu www.grindavik.is, frá 30. mars til 20. maí. Athugasemdir og ábendingar skulu vera skriflegar og berast til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs í síðasta lagi 20. maí, annað hvort á Víkurbraut 62, 240 Grindavík eða á netfangið armann@grindavik.is
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs
Ármann Halldórsson