Snćfellskonur tryggđu sér deildarmeistaratitilinn í Röstinni

  • Körfubolti
  • 26. mars 2015

Grindavíkurkonur tóku á móti Snæfelli í gær, en fyrir leikinn sátu gestirnir í efsta sæti deildarinnar og deildarmeistaratitillinn innan seilingar. Skemmst er frá því að segja að okkar konur sáu aldrei til sólar í þessum leik og töpuðu leiknum stórt, 60-88. Slæmur skellur á heimavelli er ekki góður fyrirboði fyrir komandi úrslitakeppni, en það er ekki ólíklegt að þessi lið mætist í henni. Vonandi verður þetta tap þó frekar til að vekja Grindvíkinga og þær koma tvíefldar til baka næst þegar þessi lið mætast, tilbúnar að ná fram hefndum.

Karfan.is gerði leiknum skil:

"Bikarmeistarar Grindavíkur voru nánast óþekkjanlegar í kvöld þegar þær tóku á móti toppliði Snæfells í Dominosdeild kvenna. Snæfell hinsvegar augljóslega tilbúnar að klára mótið með sæmd og tryggja sig sem fyrst deildarmeistaratigninni. Það gerðu þær svo um munaði í kvöld þegar þær óðu yfir gestgjafa sína og sigruðu 60:88 og eiga þær nú heimavallarréttinn vísan í úrslitakeppninni.

Það er ekki að sjá annað en að þetta Snæfellslið sé tilbúið í úrslitakeppnina. Þær voru samstilltar allan leikinn gegn Grindavík, vörn þeirra þétt og sóknarleikurinn létt leikandi. Mótspyrnan var hinsvegar töluvert minni en búist var við fyrir leik. Það tók Grindavíkurstúlkur langan tíma að átta sig á því að þetta kvöldið yrði leikinn körfuknattleikur. Vörn þeirra gulklæddur var í besta falli tilviljanakenndur og sóknin álíka slök. Leikur liðsins skánaði örlítið þegar líða tók á leikinn og þær áttu jú ágætis áhlaup í þriðja leikhluta þar sem þær náðu að minnka muninn niður í 13 stig en þar með var hápunkti þeirra náð þetta kvöldið.

Ljósi punkturinn í liði Grindavíkur var undir lok leiks þegar Hrund Skúladóttir kom inná, korn ung og efnilegur leikmaður og sýndi gestum sína litla virðingu og skoraði einhver 6 stig á jafn mörgum mínútum.

Þetta Snæfellslið líkt og það lék í kvöld er algert skrímsli að eiga við. Sem fyrr segir vörnin nánast loftþétt á tímum og svo voru þær fljótar að keyra í bakið á illa tilbúnum Grindavíkurstúlkum sem skilaði þeim svo auðveldum körfum. Kristen McCarthy er að spila gríðarlega vel þessa dagana og 33 stig og 11 fráköst virtist líta út eins og hver annar mánudagur hjá henni. Hlidur Sigurðardóttir skákaði henni hinsvegar og hnoðaði í þrennu takk fyrir takk og setti 23 stig, tók 11 fráköst og sendi 12 stoðsendingar á félaga sína."

Tölfræði leiksins

Myndasafn


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir