Ýmis uppbygging og þróun á sér nú stað í öflugri atvinnustarfsemi í Grindavík eins og fullvinnsla sjávarafurða, líftækni, haftengd ferðaþjónusta, framleiðsla á snyrtivörum og margt fleira, í anda Auðlindastefnu Grindavíkur. Grindavíkurbær hefur ákveðið að bjóða fyrirtækjum að sækja um styrk til þess að ráða til sín nemendur til að sinna verkefnum sem lúta að nýsköpun og þróun í starfseminni.
Um er að ræða styrki sem geta orðið allt að 500 þúsund hver. Styrkir geta verið allt að 50% af styrkhæfum kostnaði gegn mótframlagi umsækjanda sem getur verið í formi vinnu.
Umsóknum, með nafni verkefnis og umsækjanda, skal skilað til skrifstofu Grindavíkurbæjar í síðasta lagi 7. apríl n.k., merkt „Nýsköpun og þróun í Grindavík". Í umsókninni skal koma fram hvaða verkefni um er að ræða, hvert sé markmið verkefnisins og fjárhagsáætlun. Verkefnin skulu unnin í Grindavík. Fylgt verður viðmiðum Vaxtarsamnings Suðurnesja við mat á styrkhæfum kostnaði.