Undanfarin 60 ár hefur Grindvík ört vaxið og dafnað og í upphafi árs fór íbúafjöldinn í fyrsta skipti yfir þrjú þúsund, eins og lesa má hér. Bærinn hefur breyst frá örlitlu sjávarþorpi yfir í blómlegan og fjölsóttan bæ þar sem bæði gott og eftirsótt er að setjast að. Á meðan margir litlir bæir á landsbyggðinni glíma við fólksfækkun frá ári til árs fjölgar Grindvíkingum að meðaltali um 11,44% á hverjum fimm árum. Íbúafjöldi Grindavíkur hefur sannarlega sprungið út á þessum 60 árum en íbúafjöldinn hér í bæ hefur rúmlega sexfaldast á þessum tíma. Til samanburðar hefur íbúafjöldi alls landsins aðeins tæplega þrefaldast.
Þessi mikla fjölgun hér í Grindavík helst í hendur við öflugt atvinnulíf í bænum og hátt atvinnustig. Harðduglegir og útsjónarsamir Grindvíkingar hafa hér byggt upp í sameiningu öflugt bæjarfélag og njótum við í þessu samhengi að sjálfsögðu nálægðar við gjöful sjávarmið, vinsælasta ferðamannastað landsins og höfuðborgina.
Foreldrar tvíburanna sem eru Grindvíkingar nr. 3000, Sigrún Ísdal Guðmundsdóttir og Steinar Nói Kjartansson, ásamt Bæjarstjórn Grindavíkur.
(Greinin birtist fyrst í 1. tbl. Járngerðar 2015, fréttabréfi Grindavíkurbæjar)