Grátlegt tap gegn KR og stađan í einvíginu 0-2

  • Körfubolti
  • 23. mars 2015

Grindvíkingar fóru illa að ráði sínu þegar þeir tóku á móti KR í 2. leik liðanna í 8-liða úrslitum Dominosdeildar karla í gær. Okkar menn fóru heldur brösulega af stað en hrukku svo í gang í 2. leikluta og voru á tímabili komnir með 18 stiga forskot á Íslandsmeistarana. Í 4. leikhluta gekk hins vegar lítið upp og Grindvíkingar skoruðu aðeins 10 stig gegn 27 stigum gestanna sem unnu leikinn að lokum, 77-81.

Okkar menn eru því komnir með bakið upp að veggnum fræga og eiga erfitt verk fyrir höndum. Sverrir hefur eflaust brýnt fyrir mönnum að hugsa bara um einn leik í einu og næst á dagskrá hlýtur að vera að sækja sigur í Frostaskjólið, en leikmenn eru sjálfsagt með það á bakvið eyrað að ef sá leikur tapast verður þeim sópað útúr úrslitakeppninni í ár. Það væru þó ekki sanngjörn örlög enda Grindvíkingar sýnt það í þessum tveimur leikjum að þeir eiga í fullu tré við ótrúlega vel mannað lið KR, sem er án vafa með lang breiðasta hópinn í deildinni í ár.

Karfan.is fjallaði ítarlega um leikinn. Þar má sjá fleiri viðtöl og brot úr leiknum:

„KR sigraði Grindavík í öðrum leik rimmu þeirra í 8 liða úrslitum úrslitakeppni Dominos deildar karla í körfubolta fyrr í kvöld á heimavelli þeirra í Röstinni í Grindavík með 81 stigi gegn 77. KR eru því komnir með þæginlega 2-0 forystu í einvíginu og þurfa þ.a.l. aðeins einn sigurleik í viðbót til þess að senda lið Grindavíkur á veiðar. Þriðji leikur liðanna fer fram komandi fimmtudag vestur í bæ, í DHL höllinni kl. 1915.

Fyrsti leikur þessa einvígis er sagt hafa borið mikinn skyldleika við þann er fór fram í kvöld. Það er, að í honum var það KR sem að virtist vera mun betra liðið á vellinum, eða alveg þangað til að Grindavík spítti í lófana og kom á hetjulegan hátt til baka undir lokin. Leikurinn í kvöld hinsvegar með öfugum hætti, þ.e. að það var Grindavík sem átti leikinn alveg þangað til að KR komu til baka undir blálokin. Eini munur þessara tveggja leikja kannski sá að KR tókst að vinna þá báða. Héldu út í fyrri leiknum, en Grindavík ekki í þessum.

Leikurinn fór vel af stað. Þar sem að bæði lið virtust rétt stemmd. Þó fyrsti leikhlutinn hafi endað með 9 stiga sigri KR (16-25), þá var það samt ekkert sem gaf neitt í ljós annað en að Grindavík ætti eftir að koma til baka.

Í öðrum leikhlutanum gerðu þeir einmitt það. Unnu annan leikhluta með meiri mun en þeir höfðu tapað með í þeim fyrsta (31-14) og þegar haldið var til búningsherbergja í hálfleik var það ekki aðeins tölfræðilegur munur sem Grindavík hafði unnið sér inn (staðan í hálfleik var 47-39), heldur höfðu þeir farið af slíku offorsi til þess að ná í það, að undirritaður efast um að nokkur þeirra fjölmörgu stuðningsmanna sem mættu í Röstina í kvöld hafi órað fyrir að þeirra lið ætti eftir að gera nokkuð annað en að koma þessum í koju frekar auðveldlega.

Mikið fór fyrir þeim bræðrum Þorleifi (8 stig) og Ólafi Ólafssyni (15 stig / 4 stoðsendingar) í fyrri hálfleiknum. Barátta þeirra og elja virtist virka eins og eldsneyti á félag þeirra í liðinu því (sérstaklega í 2. leikhlutanum) leiddu þeir sína menn með fordæmi og létu, á tímabilum, liðsmenn KR líta út fyrir að vera annars flokks. Fyrir gestina var það Helgi Már Magnússon (12 stig) skipti mestum sköpum í þessum fyrri hálfleik.

Eftir hlé héldu heimamenn áfram á svipaðri braut og þeir höfðu endað fyrri hálfleikinn á. Fóru inn í fjórða leikhluta með heila 13 stiga forystu (67-54).

Síðasti leikhlutinn virtist svo ætla að verða heimamönnum auðveldur eftir að Oddur Rúnar Kristjánsson opnaði stigareikning hlutans með þrist (70-54) þegar aðeins um 15 sekúndur höfðu liðið af honum. KR setti hinsvegar allt í lás varnarlega (um þetta leyti) og hófst handa við að vinda ofan af þeim ógöngum sem að þeir höfðu verið búnir að koma sér í. Voru 11-1 eftir umrædda þriggja stiga körfu Odds Rúnars og þegar tæpar 4 mínútur voru eftir, leyfðu þeir Grindavík ekki að skora það sem eftir lifði leiks.

Lykilmaður þessa leiks, Brynjar Þór, var þeim einkar mikilvægur á þessum lokamínútum leiksins, skoraði síðustu 7 stig leiksins. Sem meðal annarra innihélt risastóran þrist (í stöðunni 77-76) sem kom KR yfir (77-79) í fyrsta skipti síðan í 2. leikhlutanum, sem og banahöggið (77-81) í hraðaupphlaupi eftir að Grindavík hafði (sjá myndband) klúðrað sínum málum til að skora undir blálok leiks.

KR vann því leikinn með 81 stigi gegn 77 og fer því með þæginlega 2-0 forystu aftur í Frostaskjólið, þar sem að komandi fimmtudag, þeir munu freista þess að sópa Grindavík út úr úrslitakeppninni þetta árið."

Tölfræði

Myndasafn 1

Myndasafn 2

Stig Grindavíkur: Rodney Alexander 17/11 fráköst, Ólafur Ólafsson 17/5 fráköst, Þorleifur Ólafsson 13/5 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 10/8 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 10, Oddur Rúnar Kristjánsson 8, Ómar Örn Sævarsson 2, Daníel Guðni Guðmundsson 0, Björn Steinar Brynjólfsson 0, Jón Axel Guðmundsson 0/4 fráköst, Hinrik Guðbjartsson 0, Hilmir Kristjánsson 0.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir