Af fingrum fram međ Jóni Ólafs og Gunnari Ţórđar byrjar kl. 21 vegna körfuboltans

  • Fréttir
  • 20. mars 2015

Ákveðið hefur verið að seinka tónleikum Jóns Ólafssonar og Gunnars Þórðarsonar á sunnudagskvöldið, til kl. 21:00 (í stað 20), svo þeir skarist ekki á við leik Grindavíkur og KR í úrslitakeppninni í körfubolta en leikurinn hefst kl. 19:15. Það verður því risa tvenna þetta kvöld. Grindvíkingar eru hvattir til þess að tryggja sér miða á viðburðinn af Fingrum fram á sunnudaginn í sal tónlistarskólans í Iðnu. Miðaverð í forsölu: 2.000 kr. Miðana er hægt að kaupa í Aðal-Braut (ekki tekið við greiðslukortum). Miðaverð við hurð: 2.500 kr. Alls eru 100 miðar til sölu og hefur miðasalan farið vel af stað. Tryggið ykkur því miða í tíma.  

Sunnudaginn 22. mars kl. 21:00 Tónleikasalur tónlistarskólans; Spjalltónleikaröðin „Af fingrum fram" hefur notið mikilla vinsælda síðustu árin í Salnum, Kópavogi. Gestgjafinn; Jón Ólafsson, hefur fengið til sín þekktustu tónlistarmenn landsins og farið með þeim í gegnum ferilinn auk þess að heyra sögurnar á bak við lögin. Gunnar Þórðarson þarf vart að kynna fyrir Íslendingum en hann fagnaði á dögunum 70 ára afmæli.

Gunnar er maðurinn á bak við helstu dægurperlur Íslands, stofnaði bæði Hljóma og Trúbrot og hefur vísast frá nógu að segja.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!