Nemendur í Grindavík voru mjög áhugasamir um sólmyrkvan í morgun. Kennarar voru búnir að undirbúa þau vel fyrir atburðinn, allir voru með á hreinu hvað var í gangi og pössuðu sig að horfa ekki í sólina nema með gleraugun. Veðrið var yndislegt og allir höfðu gaman af. Smellið á MEIRA til að sjá fleiri myndir.
Þórunn Alda náttúrufræðikennari er sólmyrkvasérfræðingur skólans og hér útskýrir hún sólmyrkvann fyrir nemendum.
Áhuginn var ekkert of mikill í byrjun en það breyttist þegar þau komu út.