Við erum svo tropical hérna suðurfrá að við fáum oft bara tvo, þrjá snjódaga á vetri en nú eru komnir
þrír mánuðir í beit, erum við ekkert að sjá fyrir endann á þessu eða er snjómenning það sem koma
skal í Grindavík?
Þriðjudagskvöldið 17. mars verður opið hús hjá Miðstöð símenntunar í Grindavík. Húsið opnar kl.
20:00 en um kl. 20:30 ætlar Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur, eða hinn eini sanni Siggi stormur
að halda léttan fyrirlestur og útskýra fyrir okkur hvað er í gangi í veðrakerfunum hjá okkur.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir - Heitt á könnunni