Sigríður Guðmundsdóttir Hammer hefur verið ráðinn aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Laut. Hún tekur við af Fríðu Egilsdóttir sem starfar nú sem leikskólastjóri. Tvær umsóknir bárust um stöðuna. Sigríður sem er leikskólakennari að mennt hefur starfað á leikskólanum Laut frá 1999 lengst af sem deildarstjóri.