Rétt er að vekja athygli á glæsilegum sýningum hjá leikskólunum Króki og Laut í verlsunarmiðstöðinni. Formleg opnun sem átti að vera í dag kl. 14:30 hefur verið frestað til mánudags vegna veðurs en sýningarnar verða engu að síður opnar í dag og alla helgina.
Heilsuleikskólinn Krókur opnar sýninguna Laufblöð á sama trénu, í húsnæði gamla Sparisjóðsins. Á sýningunni má sjá
listaverk og tónlistarmyndband barnanna eftir þemavinnu síðustu vikur, sem endurspeglar jákvæð viðhorf gagnvart fjölbreytileika samfélagsins.
Leikskólinn Laut opnar ljósmyndasýningu leikskólabarna á gangi verslunarmiðstöðvarinnar. Viðfangsefni: „Bærinn minn".