Menningarvikan í Grindavík fer af stað í dag og verður ýmislegt um að vera, aðallega á vegum leikskólabarna og svo eru skemmtanir í kvöld, kútmagakvöld og konukvöld. Þá er upplestur á Bryggjunni. Dagskráin í dag er eftirfarandi:
Föstudagur 13. mars
Kl. 10:00 Kaffihúsið Bryggjan. Aðalgeir Jóhannsson les smásöguna Ingvar eftir Melinn.
Kl. 14:30 Verslunarmiðstöðin. Heilsuleikskólinn Krókur og Leikskólinn Laut opna sýningar:
Heilsuleikskólinn Krókur opnar sýninguna Laufblöð á sama trénu, í húsnæði gamla Sparisjóðsins. Á sýningunni má sjá
listaverk og tónlistarmyndband barnanna eftir þemavinnu síðustu vikur, sem endurspeglar jákvæð viðhorf gagnvart fjölbreytileika samfélagsins.
Leikskólinn Laut opnar ljósmyndasýningu leikskólabarna á gangi verslunarmiðstöðvarinnar. Viðfangsefni: „Bærinn minn".
Boðið verður upp á veitingar við opnunina.
Kl. 17:00 Kaffihúsið Bryggjan. Aðalgeir Jóhannsson les smásöguna Ingvar eftir Melinn.
Kl. 18:00 Kútmagakvöld Lionsklúbbs Grindavíkur í
íþróttahúsinu, félagið fagnar 50 ára afmæli í ár og 40 ára kútmagaafmæli. Húsið opnar kl. 18:00 með kynningu fyrirtækja. Veislan byrjar kl. 20:00. Veislustjóri: Sólmundur Hólm. Ýmis skemmtiatriði eins og Helgi Björns, Baggabandið og karla-kórinn Þrestir. Á boðstólum verður allt það besta sem til er í sjávarfangi. Aðgöngumiðar eru seldir í Skeljungi að Seljabót 1 (Kári eða Jóhanna), sími 444 3131 og 840 3131.
Kl. 19:30 Konukvöld kvennakörfuboltans haldið í Eldborg. Sala aðgöngumiða í Palóma. Landsliðskokkarnir frá Bláa Lóninu töfra fram dýrindis máltíð. Tískusýning í litríkum sumarfatnaði frá Palómu. Happy Hour á suðrænum sumarkokteilum. Sverrir Bergmann og Halldór fjallabróðir skemmta. Happdrætti.