Birna Sverrisdóttir flutti inn í íbúđ á fyrstu hćđ í sjö hćđa blokk í Grindavík í miklum flýti á Ţorláksmessu áriđ 2007. Hún hefur haft blokkina út af fyrir sig síđan ţá og segir ađ ţađ vćsi ekkert um sig, ţó ađ vissulega hefđi hún viljađ sjá lóđina klárast í kringum húsiđ ? ađkoman sé leiđinleg. ?En ég er međ fullt af geymslum og nýti mér ţćr í stađinn!?
Hún heldur sér í ţjálfun međ ţví ađ hlaupa međ Palla, hundinum sínum, upp og niđur stiga hússins, og segist alveg laus viđ alla taugaveiklun og móđursýki. ?Ég segi ţađ ekki, ađ ţegar ég vaknađi viđ jarđskjálftana í fyrra leit ég upp og hugsađi: ?Jćja, er ég ađ fá sjö hćđir ofan á mig???
Ekki verđur af ţví ađ reist verđi bílageymsla, eins og til stóđ, og enn hefur ekki veriđ sett upp dyrabjöllukerfi í blokkinni.
?Mér var gefin ţráđlaus dyrabjalla fyrir jólin,? segir hún. ?En ég er svo lánsöm ađ ég geng beint inn í mína íbúđ úr ganginum viđ útidyrnar. Og ég er hálfgerđur vaktmađur, ef ég heyri ţrusk, ţá athuga ég hvađ er á seyđi. Ţađ versta er kannski ţađ, ađ hér eru ekki komin nein útidyraljós, ţannig ađ ţetta er eins og myrkrahellir ţegar ég kem heim á kvöldin. En ég hef meiri áhyggjur af fólki sem ćtlar ađ heimsćkja mig en sjálfri mér.?
Og sagan um Birnu og blokkina er farin ađ berast um Suđurnesin. ?Ţegar ég fór nýlega til Keflavíkur og rétti fram kreditkortiđ leit afgreiđslumađurinn á mig og sagđi: ?Já, svo ţú ert Birna í blokkinni!?