Menningarvikan að þessu sinni verður með fjölmenningarlegum blæ. Sett var á laggirnar fjölmenningarráð sem hefur í sameiningu undirbúið þrjá viðburði til þess að kynna menningu þessara þjóða fyrir Grindvíkingum. Jafnframt er tilgangurinn að kynna menningarvikuna fyrir íbúum hér með erlent ríkisfang.
Laugardaginn 14. mars kemur fjölmenningarráðið að tveimur viðburðum. Formleg setning Menningarvikunnar verður í kirkjunni kl. 17:00 og í kjölfar hennar verður fjölmenningarlegt veisluborð þar sem gestum gefst kostur á að smakka rétti frá nokkrum löndum.
Fjölmenningarhátíð verður á Salthúsinu kl. 21:00. Í Grindavík búa um 3.000 manns og þar af eru rúmlega 300 með erlent ríkisfang. Sá hópur hefur skipað fjölmenningarráð sem verður með fjölmenningarhátíð þar sem kynnt verða fjögur lönd sem eiga það sameiginlegt að íbúar frá löndunum búa í Grindavík. Löndin sem kynnt verða eru Pólland, gamla Júgóslavía og Serbía, Tæland og Filippseyjar. Fulltrúar þessara landa kynna sögu þeirra, menningu og tónlist og í lok hverrar kynningar verða fyrirspurnir. Þessi kynning er ekki síður hugsuð fyrir Grindvíkinga, þarna fá þeir einstakt tækifæri til þess að kynnast menningu þessara þjóða. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.
Sunnudaginn 22. mars kl. 14:00 kynnir fjölmenningarráð Grindavíkur fjóra þekkta rithöf-unda frá Póllandi, Serbíu, Tælandi og Filippseyjum. Jafnframt verður íslenska Nóbelsskáldið Halldór Laxness kynnt. Kynningin fer fram á íslensku og er hún bæði fyrir Grindvíkinga sem vilja kynnast rithöfundum frá framandi slóðum og íbúa Grindavíkur með erlent ríkisfang.
Þá má geta þess að í grunnskólanum býður Skólamatur upp á alþjóðlegan matseðill í Menningarvikunni fyrir nemendur og kennara.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að taka þátt í þessum viðburðum.