Undirbúningur fyrir Menningarvikuna í Grindavík 14.-22. mars n.k. er á fullum krafti út um allan bæ þessa dagana. Málarar, ljósmyndarar, leikskólar, grunnskólinn, bókasafnið, fjölmenningaráð, kórar og ýmsir fleiri eru í óða önn að undirbúa metnaðarfulla dagskrá sem dreift verður í hús eftir helgi. Hinn fjölþjóðlegi Vísiskór undir stjórn Margrétar Pálsdóttur tekur m.a. þátt í setningu Menningarvikunnar og í söngkvöldi í kirkjunni undir yfirskriftinni „Og allir í kór!“
Eyjólfur Vilbergsson ljósmyndari kom á opna æfingu Vísiskórsins á sunnudaginn og tók þessar skemmtilegu myndir.
Vísiskórinn ætlar að syngja á íslensku, pólsku, serbnesku og tælensku! Geri aðrir betur! Þrátt fyrir að nú sé hávertíð og starfsfólkið vinni langan vinnudag, koma allir glaðir og hressir á æfingar og njóta þess að syngja saman - og læra tungumál hver annars.
Dagskrá tónleikanna miðvikudaginn 18. mars:
Kl. 20:00 Og allir í kór! Söngkvöld í Grindavíkurkirkju.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.