1374. fundur Bæjarráðs Grindavíkur haldinn í bæjarstjórnarsal, þriðjudaginn 3. mars 2015 og hófst hann kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Hjálmar Hallgrímsson formaður, Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm aðalmaður, Kristín María Birgisdóttir varaformaður, Marta Sigurðardóttir áheyrnarfulltrúi, Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Fundargerð ritaði: Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri.
Dagskrá:
1. 1501010 - Íþróttamannvirki: Uppbygging tengibyggingar og íþróttasalar
Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs kynnti tillögu nefndar um uppbyggingu íþróttamannvirkja, ásamt kostnaðaráætlunum. Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum frá starfsmönnum nefndarinnar og frestar afgreiðslu til næsta fundar.
2. 1503002 - Fjárfestingasamningur íslenska ríkisins við Matorku ehf.
Undirritaður fjárfestingasamningur milli íslenska ríkisins og Matorku ehf. lagður fram til upplýsingar.
3. 1501294 - Hreyfisamningar: 2015
Minnisblað sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs lagt fram, þar sem lagt er til að verkefnið verður endurtekið í ár í sex mánuði.
Tillagan er samþykkt með tveimur atkvæðum B- og G lista gegn atkvæði fulltrúa D-lista.
Bæjarráð hvetur aðra vinnuveitendur í Grindavík til að kanna kosti og galla þess að gera hreyfisamninga við sína starfsmenn og draga þar með úr umferð í bænum og efla lýðheilsu.
4. 1502001 - Skipulagsnefnd: Samþykkt
Tillaga að breyttri samþykkt um skipulagsnefnd lögð fram og rædd.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
5. 1501154 - Samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa
Tillaga að samþykkt um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa lögð fram og rædd.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
6. 1503006 - Sjóvarnir:2016
Minnisblað sviðsstjóra umhverfis-og skipulagssviðs lagt fram, þar sem farið er fram á viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 að fjárhæð 7.500.000 kr. vegna söfnunar á jarðefni til sjóvarnagerðar.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við eignfærða fjárfestingu ársins 2015 að fjárhæð 7.500.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
7. 1502296 - Reglur um fjárstyrk vegna lögmannskostnaðar í barnaverndarmálum
Félagsmálanefnd leggur fram tillögu að nýjum reglum um fjárstyrk vegna lögmannskostnaðar í barnaverndarmálum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að reglurnar verði samþykktar.
8. 1502297 - Sveitarfélagamörk við Krýsuvík. Krafa Reykjavíkurborgar um úrskurð héraðsdóms
Krafa Reykjavíkurborgar um úrskurð héraðsdóms Reykjaness lögð fram til upplýsingar. Krafan er lögð fram í kjölfar úrskurðar Óbyggðanefndar í vegna kröfu Hafnarfjarðarbæjar. Krafa Reykjavíkurborgar í málinu sker aðalkröfu Grindavíkur eins og hún var sett fram í Óbyggðanefndarmálinu, en ekki var fallist á þá kröfu Grindavíkurbæjar í því máli.
9. 1503007 - Íþróttafélagið Nes: umsókn um samstarfssamning 2015
Íþróttafélagið Nes óskar eftir því að gerður verði samstarfssamningur milli Grindavíkurbæjar og félagsins.
Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar frístunda- og menningarnefndar.
10. 1503009 - Vindorkugarður á Reykjanesi: viljayfirlýsing
EAB newenergy í Þýskalandi óskar eftir því að gera viljayfirlýsingu við Grindavíkurbæ um vindorkugarð á Reykjanesi. Drög að viljayfirlýsingu lögð fram.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar í skipulagsnefnd annarsvegar og hinsvegar í umhverfis- og ferðamálanefnd.
11. 1503005 - Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda: styrkbeiðni
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda óskar eftir styrk.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
12. 1501299 - Kvenfélag Grindavíkur: Ósk um styrk
Kvenfélag Grindavíkur óskar eftir styrk á móti leigu á sal Iðunnar vegna jólabingós í nóvember 2014.
Samþykkt samhljóða.
13. 1503008 - Sólheimar visvænt samfélag: ósk um styrk til endurbyggingar Sólheimahúss
Sólheimar visvænt samfélag óska eftir styrk til endurbyggingar Sólheimahúss.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu.
14. 1502069 - Þorrablót UMFG 2015: ósk um lækkun á leigu á íþróttahúsi
Knattspyrnudeild og körfuknattleiksdeild óska eftir styrk á móti leigu á húsnæði og búnaði í íþróttahúsi vegna þorrablóts 2015.
Samþykkt samhljóða, með vísan til fyrirliggjandi samningsdraga milli Grindavíkurbæjar og UMFG. Í þeim drögum er kveðið á um ákveðin afnot félagsins af mannvirkjum bæjarins.
15. 1503010 - Sumarbúðir Dropans: styrkbeiðni
Sumarbúðir Dropans, félags barna með sykursýki, óska eftir stuðningi við sumarbúðir félagsins.
Fulltrúi B-lista víkur af fundi við afgreiðslu málsins, vegna tengsla við umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir að styrkja sumarbúðir Dropans um 50.000 kr., sem færist á lið bæjarráðs.
16. 1502076 - Fjölmenningarstefna: tillaga B-lista
Fulltrúi B-lista leggur fram eftirfarandi tillögu.
Grindavík er fjölmenningarsamfélag. Því ber að fagna og taka vel á móti íbúum og gefa þeim kost á að fá þjónustu og upplýsingar um samfélagið á einfaldan hátt. Til að ná því markmiði leggja fulltrúar Framsóknar í bæjarstjórn til að bæjarráð í samráði við aðrar nefndir bæjarins og íbúa Grindavíkur vinni fjölmenningarstefnu sem lögð skal fyrir bæjarstjórn til staðfestingar. Stefnt skal að því að stefnan verði tilbúin fyrir 1. október 2015. Einnig er lagt til að strax verði hafist handa við að þýða helstu upplýsingar á heimasíðu Grindavíkurbæjar yfir á önnur tungumál.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að verkefnisáætlun með kostnaðaráætlun fyrir verkefnið.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:45.