Hin geysivinsæla Firmakeppni Eimskips og Knattspyrnudeildar UMFG snýr aftur eftir nokkurra ára hlé, laugardaginn 4. apríl næstkomandi. Firmakeppnin fer fram í Íþróttahúsi Grindavíkur og er búist við hörku stemmningu eins og venjan er þegar þessi mót fara fram.
Firmakeppnin er liður í fjáröflun Meistaraflokks karla í knattspyrnu fyrir æfingaferð liðsins til Spánar í vor. Leikið er í 4 manna liðum.
Leiktími er 2x5 mínútur
Þátttökugjald er 30.000 krónur á lið.
Skráning er hjá Knattspyrnudeildinni í síma 426-8605 eða á netfangið umfg@centrum.is
Knattspyrnudeild Grindavíkur hvetur fyrirtæki og hópa til þess að skrá sig til leiks og vera með í þessu stórskemmtilega móti.
Við treystum á þinn Stuðning! - Meistaraflokkur karla Grindavík