Söfn og sjávarfang á Suðurnesjum - Vilt þú vera með?
Söfn á Suðurnesjum hafa tekið höndum saman um að bjóða upp á sameiginlega dagskrá
helgina 14. ? 15. mars n.k. Söfn, setur og sýningar á svæðinu eru mörg og fjölbreytt
og því verður margt á döfinni. Sameiginlegt þema helgarinnar er Söfn og sjávarfang
á Suðurnesjum og til þess að auka fjölbreytni í dagskránni bjóða söfnin veitingahúsum
og galleríum til þátttöku. Einnig er opið fyrir þátttöku fjölmargra annarra aðila
en þeim er bent á að hafa samband við safn í sinni heimabyggð og bjóða upp á atriði
í samstarfi við það. Hugmyndir eru um tónleika inni á söfnum, sýningar og margs
konar uppákomur. Vonast er til þess að úr verði mjög fjölbreytt menningardagskrá,
ásamt freistandi tilboðum um veitingar og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
Fulltrúar allra sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum vinna sameiginlega að undirbúningi
dagskrárinnar. Þeir aðilar (söfn, veitingahús, gallerí og aðrir) sem telja sig
hafa fram að færa dagskráratriði sem eiga heima á safnahelginni, eru hvattir til
þess að setja sig í sambandi við menningarfulltrúa sveitarfélaganna sem fyrst.
Þeir eru:
Erna M. Sveinbjarnardóttir Sveitarfélaginu Garði
ernam@svgardur.is
Guðjón Þ. Kristjánsson Sandgerðisbæ
gudjon@sandgerdi.is
Kristinn J. Reimarsson Grindavíkurbæ
kreim@grindavik.is
Ólafur Þór Ólafsson Sveitarfélaginu Vogum
olafur@vogar.is
Valgerður Guðmundsdóttir Reykjanesbæ
valgerdur.gudmundsdottir@reykjanesbaer.is
Dagskrá safnahelgarinnar verður dreift tímanlega í öll hús á Suðurnesjum auk
þess sem stefnt er að mjög góðri kynningu á henni í fjölmiðlum um allt land. Hér
er því kjörið tækifæri til kynningar á fjölbreyttu menningarstarfi á Suðurnesjum
svo og annari þjónustu og mikilvægt að aðilar bregðist skjótt við og tilkynni
um þátttöku sína. Í nóvember var haldin safnahelgi á Suðurlandi sem tókst afar
vel og sóttu m.a. fjölmargir íbúar af höfuðborgarsvæðinu dagskrá hennar.
Með menningar- og safnakveðju,
menningarfulltrúar sveitarfélaganna á Suðurnesjum.