Boðað er til fundar vegna listasmiðju fyrir börn, 5 ára og eldri, í Menningarvikunni þriðjudaginn 3. mars kl. 15:00 á bæjarskrifstofunum (fundarsalur 2. hæð). Listasmiðjan tókst virkilega vel í fyrra undir stjórn Kristínar Pálsdóttur. Hugmyndin er að endurtaka leikinn í ár en okkur vantar gott fólk til að aðstoða við undirbúninginn.
Allir áhugasamir eru velkomnir á þennan undirbúningsfund. Margar hendur vinna létt verk!