Hinn 17. janúar sl. var staða leikskólastjóra við Leikskólann Laut auglýst laus til umsóknar. Frestur til að skila umsóknum um stöðuna rann út hinn 4. febrúar sl. og bárust tvær umsóknir frá umsækjendum sem báðir voru metnir hæfir til að gegna stöðunni. Að virtu heildarmati á gögnum málsins, viðtölum við umsækjendur og umsögnum umsagnaraðila, var tekin sú ákvörðun að höfðu samráði við fræðslunefnd Grindavíkurbæjar að bjóða Fríðu Egilsdóttur stöðuna.
Fríða ætti að vera Grindvíkingum og nemendum á Laut að góðu kunn enda starfað þar árum saman sem aðstoðarleikskólastjóri og verið staðgengill Bínu í gegnum árin. Við óskum Fríðu til hamingju með starfið og um leið viljum við nota tækifærið og þakka Bínu fyrir vel unnin störf undanfarna áratugi.