Atvinna: Ađstođarleikskólastjóri á leikskólanum Laut

  • Fréttir
  • 26. febrúar 2015

Aðstoðarleikskólastjóri óskast til starfa við leikskólann Laut í Grindavík. Leikskólinn Laut er í nýlegu húsnæði og er fjögurra deilda skóli með rúmlega 100 börn á aldrinum 18 mánaða til 6 ára. Laut er grænfánaskóli og starfar eftir Uppbyggingarstefnunni. Grunngildi leikskólans eru gleði, hlýja, virðing .

Starfsvið:
• Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri og faglegu starfi leikskólans.
• Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans.
• Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
• Sinnir þeim verkefnum sem varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum hverju sinni.

Menntun, reynsla og hæfni:
• Leikskólakennaramenntun.
• Framhaldsmenntun æskileg.
• Stjórnunarreynsla í leikskóla æskileg,
• Færni í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
• Góð tölvukunnátta.
• Góð íslenskukunnátta.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags stjórnenda leikskóla og Sambands íslenskra sveitarfélaga og þarf umsækjandi að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 6.mars nk.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um menntun og starfsferil. Umsókn sendist á netfangið freda@grindavik.is

Allar nánari upplýsingar gefur Fríða Egilsdóttir leikskólastjóri í síma 426 8396, 847 9859.
Heimasíða leikskólans Lautar er http://leikdal.simnet.is/

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!