Áttu þér draum um að fara á STRANDVEIÐAR - þá höfum við námið fyrir þig. Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 eða á www.fiskt.is. Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningarlengd og hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008.
Á námskeiðinu verða kennd bókleg atriði sem krafist er samkvæmt námskrá um skipstjórnarnám: siglingafræði og samlíkir, siglingareglur, stöðuleika og slysavarnir, siglingatæki og fjarskipti.
Kennt verður tvö kvöld í viku og fjóra laugardaga fram í byrjun mars .
Verð 109.000.kr. Athugið niðurgreiðslu frá stéttafélagi
Námskeiðið er að fara af stað, hægt er að bæta við nokkur nemendum.
Nánari upplýsingar eru veittar í skólanum í síma 412-5966
Fisktækniskóli Íslands
Víkurbraut 56