Hátt í 30 manns sóttu afar vel heppnaða og skemmtilega ráðstefnu um málefni ungs fólks í Grindavík á vegum Æskulýðsvettvangsins á dögunum. Á ráðstefnuna mætti ungt fólk og þeir sem bera ábyrgð á málefnum ungs fólks í bæjarfélaginu. Viðfangsefni fundarins var skipt upp í fjóra flokka, menntun, íþróttir og æskulýðsmál, samfélagið mitt og listir og menning. Fundarformið skiptist upp í fjórar 20 mín lotur og fengu allir þátttakendur fá að koma sínum skoðunum á framfæri í öllum flokkunum.
Óhætt er að segja að ráðstefnan hafi tekist virkilega vel og mætingin framar vonum miðað við vonsku veður sem var þetta kvöld. Æskulýðsvettvangurinn tekur svo saman skýrslu um það helsta sem fram kom á ráðstefnunni og sendir Grindavíkurbæ til rýningar.
Myndband frá ráðstefnunni má sjá með því að smella hér.