Listi Grindvíkinga heldur opinn bæjarmálafund á Bryggjunni klukkan 20:00 í kvöld. Á dagskrá verður efni bæjarstjórnarfundarins á morgun þar sem m.a. verður tekin fyrir stefnumótunarvinna um íþróttamál í Grindavík og deiliskipulag fyrir gamla bæinn.
Hvetjum áhugasama til að líta við í kaffi og spjall!
Stjórnin