Tveir bikarúrslitaleikir í yngri flokkum á sunnudag

  • Körfubolti
  • 20. febrúar 2015

Stelpurnar okkar í meistaraflokki eru ekki þær einu sem spila til bikarúrslita um helgina, því á sunnudag fara fram bikarúrslit yngri flokka í Laugardalshöllinni. Grindavík á þar tvö lið, annarsvegar 9.fl kvenna sem mæta liði Keflavíkur og síðan sameignilegt lið Grindavíkur og Þórs í 11.flokki karla sem mætir liði KR.

9.flokkur hefur leik kl 12:00 og strax á eftir hefst leikurinn hjá 11.flokki eða kl 14:00.

Við hvetjum alla Grindvíkinga til að gera sér ferð í Laugardalshöllina um helgina. Fyrst á laugardeginum til að hvetja stelpurnar í meistaraflokknum áfram og síðan aftur á sunnudeginum og fylgjast með og hvetja okkar unga og efnilega íþróttafólk.

Áfram Grindavík!

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!