Í dag öskudag voru afhent verðlaun fyrir lestrarátak sem unglingastigið tók þátt í fyrir jólin. Í byrjun átaksins voru nemendur lestrarprófaðir og samanlagður fjöldi atkvæða í hverjum bekk tekinn saman. Síðan var farið í lestarþjálfun í 6 vikur, prófað aftur og samanlögð atkvæðin tekin saman á ný. Skemmst er frá að segja að 10.L vann lestarleikana, þau hækkuðu sig að meðaltali um 50.5 atkvæði á nemandi.
Einnig voru þeir nemendur sem hækkuðu sig hlutfallslega mest verðlaunaðir.
Þessir nemendur hækkuðu sig hlutfallslega mest í Lestrarleikunum.