Nemendur í 5. bekk buðu foreldrum sínum í heimsókn sl. föstudag. Tilefnið var skil og kynning á landafræðiverkefni um Ísland sem börnin voru búin að vinna að undanfarnar vikur. Börnin stóðu sig með sóma og foreldrarnir gerðu góðan róm að kynningunni. Þá sungu börnin í 5. P margföldunarlag sem Pálmar Guðmundsson kennari þeirra hafði samið með þeim og í lokin tóku allir undir í fjöldasöng.