Athygli er vakin á því að frístunda- og menningarnefnd hefur samþykkt að hin árlega Menningarvika verði að þessu sinni 14 - 22. mars nk. Þetta verður í sjöunda sinn sem Menningarvikan verður haldin og að þessu sinni verður hún með alþjóðlegu ívafi þar sem markmiðið er að sýna þá fjölbreyttu flóru mannlífs sem er í Grindavík.
Jafnframt hefur verið ákveðið að setja á laggirnar fjölmenningarundirbúningshóp til að aðstoða við verkefnið. Þess má geta að vinabærinn Piteå ætlar að senda listafólk til Grindavíkur til að taka þátt í menningarvikunni, bæði tónlistarfólk og listmálara. Þá mun bókasafnið vera með sérstaka fjölþjóðlega dagskrá í mennigarvikunni.
Þá er auglýst eftir tilnefningum til Menningarverðlauna 2015. Óskað er eftir tilnefningum á netfangið thorsteinng@grindavik.is
Grindvíkingar, fyrirtæki, stofnanir, þjónustuaðilar og allir þeir sem hafa áhuga á menningu eru hvattir til þess að skipuleggja menningarviðburði í þessari skemmtilegu viku.
Til þess að komast í auglýsta dagskrá Menningarvikunnar þarf að senda upplýsingar um viðburðinn á thorsteinng@grindavik.is, í síðasta lagi 25. febrúar nk.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs á netfangið thorsteinng@grindavik.is eða í síma 420 1100.