Undirbúningur fyrir Menningarvikuna stendur yfir. Á morgun miðvikudag kl. 20:00, verður fundur á Salthúsinu fyrir þá Grindvíkinga sem eru með annað ríkisfang en íslenskt, til þess að undirbúa menningarvikuna. Allir með erlent ríkisfang eru boðnir hjartanlega velkomnir á fundinn en tilgangur hans er að skipuleggja hvað hægt er að gera í menningarvikunni en þá verður sérstaklega hugað að fjölmenningu.
Grindvíkingar eru sem kunnugt er orðnir rétt rúmlega 3.000. Alls eru 303 með erlent ríkisfang og koma þeir frá 25 löndum. Lang flestir eru frá Póllandi eða tæplega 200.
Sjáumst vonandi sem flest annað kvöld.