Náttúrustofa Suðvesturlands (áður Náttúrustofa Reykjaness) er rekin skv. lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur nr. 60 frá 1992. Stofan er staðsett að Garðvegi 1 í Sandgerði og starfar þar undir sama þaki og í nánu samstarfi við Þekkingarsetur Suðurnesja og Rannsóknarsetur HÍ á Suðurnesjum.
Náttúrustofa Suðvesturlands hefur fengist við margvísleg vísindastörf en rannsóknir tengdar lífríki sjávar, fjöru og stranda hafa verið umfangsmestar ásamt vistfræðirannsóknum á fuglum. Stofan hefur einnig tekið ríkan þátt í þjónustu- og umhverfisrannsóknum er tengjast sérsviðum hennar og samstarfsaðilanna að Garðvegi 1,
sem og kennslu á háskólastigi.
Samkvæmt lögum skal forstöðumaður náttúrustofu hafa háskólapróf í náttúrufræði eða þekkingu sem meta má til jafns við það.
Hann er í forsvari fyrir stofuna í heild, stjórnar daglegum rekstri hennar og ræður að henni annað starfslið með samþykki stjórnar, eftir því sem fjármagn fæst til hverju sinni. Gerðar eru kröfur um að umsækjandi hafi faglega þekkingu á viðfangsefnum Náttúrustofunnar auk góðrar og yfirgripsmikillar þekkingar á náttúru starfssvæðis hennar. Umsækjandi skal hafa forystu- og skipulagshæfileika, mjög góða samskiptahæfni og jákvætt viðmót, og áhuga á uppbyggingu og þróunarstarfi með samstarfsaðilunum á Garðvegi 1. Forstöðumaður mun hafa starfsaðstöðu í Sandgerði
og gegna starfi sínu þaðan.
Æskilegt er að umsækjandi getið hafið störf sem fyrst. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt
kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, framtíðarsýn og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gefa skal upp tvo til þrjá meðmælendur. Umsókn skal senda til stjórnar Náttúrustofu Suðvesturlands, Vörðunni, Miðnestorgi 3, 245 Sandgerði eða á netfangið sandgerdi@sandgerdi.is fyrir 22. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri Sandgerðisbæjar í síma 420 7500. Einnig má finna upplýsingar um starfsemina