Næsta laugardag kl. 11:00 verður Norræna félagið í Grindavík endurvakið en þá verður aðalfundur þess í KVIKUNNI. Tilgangur félagsins er að efla norrænt samstarf á öllum sviðum samfélagsins, efla frið og skilning Norðurlandaþjóðanna á milli og þeirra og annarra þjóða út á við. Hugmyndir af ýmsum skemmtilegum verkefnum liggja fyrir. Allir sem sem hafa áhuga á norrænu samstarfi eru velkomnir á fundinn.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að stuðla að samskiptum milli einstaklinga, félagsdeilda og byggðarlaga og við systurfélög sín á Norðurlöndum innan vébanda Sambands Norrænu félaganna (Foreningerne Nordens Forbund, FNF) í samstarfi við Norræna félagið á Íslandi.
Eftirtaldir aðilar geta verið félagar í Norræna félaginu í Grindavík:
a. Einstaklingar
b. Skólar, bókasöfn og aðrar stofnanir
c. Félög eða félagasamtök
d. Fyrirtæki
Drög að lögum félagsins má lesa hér en þau verða lögð fram á aðalfundinum á laugardaginn.
Dagskrá:
1. Kosning fundarstjóra og ritara.
2. Skýrsla stjórnar um störf og fjárhag félagsdeildarinnar.
3. Ný lög Norræna félagsins í Grindavík lögð fram til umræðu og afgreiðslu.
4. Kosning formanns til tveggja ára
5. Kosning stjórnar, varastjórnar og endurskoðenda fyrir næsta starfsár
6. Kosning fulltrúa og varamanna á sambandsþing
7. Önnur mál.