Eins og tilkynnt var síðasta föstudag var Alexander Birgir Björnsson og fjölskylda valin Grindvíkingur ársins 2014. Hinn 13 ára gamli Alexander Birgir var hugmyndasmiðurinn á bakvið stórkostlega tónleika sem haldnir voru í Grindavíkurkirkju í nóvember. Eins og venjan er var Grindvíkungur ársins svo heiðraður á þrettándagleðinni en Róbert Ragnarsson bæjarstjóri sá um það.
Alexander Birgir skipulagði tónleikana sem voru til styrktar Einhverfusamtökunum og Birtu - landssamtökum foreldra barna/ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust. Boðið var uppá þriggja tíma dagskrá þar sem landsþekktir tónlistarmenn léku fyrir troðfullu húsi.
Björn Kjartansson, Elín Björg Birgisdóttir, Alexander Birgir og Róbert Ragnarsson bæjarstjóri ásamt Agli syni sínum.