Nýtt sameinað skóla- og almenningsbókasafn í Iðunni við Ásabraut hefur starfað frá því um miðjan ágúst. Starfsfólkið saknar ennþá nokkurra lestrarhesta, sem komu oft, en virðast ekki rata hingað á Ásabrautina. Vonandi fara þeir að sjást aftur fljótlega, því hér er bjart og vítt til veggja og bækurnar sjást vel og njóta sín mun betur. Við höfum líka fengið nýja lánþega, sem láta vel af nýja staðnum og er það afar gleðilegt.
Það er líka gleðilegt hve nemendur grunnskólans eru dugleg að taka bækur að láni og lesa - þau hafa svo sannarlega aukið útlánin til muna. Við skoðuðum tölfræðina og tókum útlánatölur fyrir október á síðasta ári og svo aftur á þessu ári til samanburðar og má sjá niðurstöðurnar í rammanum hér fyrir neðan.
Þess má geta að breytingar verða á starfsliði Bókasafnsins. Guðrún Erla Hákonardóttir lætur af störfum um áramót og við hennar starfi tekur Viktoría Róbertsdóttir grunnskólakennari.
Útlán á bókasafni Grindavíkur
Október 2013 | Október 2014 | |
Bókasafn Grindavíkur | 1.146 | |
Skólasafnið | 849 | |
Samtals bæði söfnin | 1.995 | 3.502 |
Góð gjöf Lions til bókasafnsins
Mörg okkar hafa verið svo heppin að kynnast bókum og bóklestri frá unga aldri og njótum þess að lesa mest allt lífið. Bókasafnið, Lionsklúbburinn og Heilsugæslan gengu í lið saman í haust til að hvetja foreldra til að lesa með og fyrir börnin.
Lionsklúbburinn lagði fram fé til að kaupa bækur. Heilsugæslan sér um að öll börn, sem mæta í tveggja og hálfsárs skoðun, fái gjafabréf frá bókasafninu, þar sem verkefnið er kynnt. Foreldrarnir koma á bókasafnið með barninu og leyfa því að velja bók úr ákveðnum bókaflokki, fyrir ung börn.
Öll vonumst við svo eftir því að foreldrarnir lesi bókina fyrir börnin sín og að þau verði síðar vel læs, víðsýn og gangi vel í lífinu. Það er afar mikilvægt að lesa fyrir börn, og best að byrja strax á fyrsta ári. Þetta verkefni er unnið í tengslum við lestarstefnu Grindavíkurbæjar.
Mynd: Hörður Jónsson formaður Lions og Margrét Gísladóttir forstöðumaður bókasafnsins við afhendinguna.