Í skólanum eru margar skemmtilegar hefðir, sérstaklega á aðventunni. Ein af þessum hefðum er félagsvistin sem 7.-10. bekkirnir spila alltaf í salnum síðasta daginn fyrir jólafrí. Ellert Magnússon kennari stjórnar vistinni af alkunnri snilld. Ekki var slegið slöku við spilamennskuna, „Poker face" sáust á báða bóga og mikið hugsað og pælt eins og meðfylgjandi myndir sýna.