Börnin voru mismunandi glöð við hádegisborðið í dag í Lautinni þar sem boðið var upp á ilmandi skötu og saltfisk. En flestir létu sig nú hafa það að smakka og fannst misgott og þó nokkur hámuðu í sig þetta góðgæti. En þeir sem vildu ekki skötuna fengu saltfisk í staðinn.
Fleiri myndir á heimasíðu Lautar.