Nemendur Hópsskóla leggja allir stund á forskólanám við Tónlistarskólann og hluti af því er að sýna öðrum hvernig hefur gengið. Nemendur í 3. bekk sýndu öðrum nemendum Hópsskóla hversu flink þau eru orðinn að spila á blokkflautuna við morgunsöng á mánudaginn. Spiluðu þau lagið Klukknahljóm og fengu sér til aðstoðar nokkra fiðlu snillinga sem hafa lagt stund á fiðlunám við Tónlistarskólann.