Fundur nr. 12
Fundur haldinn 1. desember 2014 kl. 20:00 að Arnarhrauni 17.
Mættir:
• Nökkvi Harðarson
• Elsa Katrín Eiríksdóttir
• Karín Óla Eiríksdóttir
• Nökkvi Nökkvason
• Katrín Lóa Sigurðardóttir
• Lárus Guðmundsson, formaður.
• Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri
1. Grindavíkurapp
Sigurpáll Jóhannsson forritari mætti á fundinn og kynnti stöðuna á appinu. Stefnt að því að appið verði tilbúið í janúar.
2. Fjárhagsáætlun 2015
Ungmennaráð þakkar bæjarstjórn fyrir að samþykkja að gera nefndina launaða. Gert er ráð fyrir 6 greiddum fundum á næsta ári. Ungmennaráð fær greidd sömu laun og aðrar fastanefndir bæjarins.
3. Ungmennagarður
Jafnframt fagnar ungmennaráð þann metnað sem bæjarstjórn sýnir að leggja fjármagn í ungmennagarð sem byggður verður upp á næstu þremur árum. Samkvæmt fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir eftirfarandi:
• 2015: 6 m.kr.
• 2016: 5 m.kr.
• 2017: 3 m.kr.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur hafnað beiðni ungmennaráðs um að hann yrði staðsettur austan megin við verslunarmiðstöðina. Því þarf að huga að annarri staðsetningu. Samþykkt að halda vinnufund 12. janúar til þess að koma hugmyndavinnunni af stað.
4. Fundargerðir
Ungmennaráð samþykkir að fundargerðir ráðsins verði birtar á heimasíðu Grindavíkurbæjar eins og hjá öðrum nefndum bæjarins.
5. Ungmennaþing
Samþykkt að halda ungmennaþing næsta vor til að fjalla um málefni ungs fólks.
6. Áheyrnarfulltrúi í frístunda- og menningarnefnd
Samþykkt að leggja fyrir frístunda- og menningarnefnd að ungmennaráð fái að vera með áheyrnarfulltrúa á fundum frístunda- og menningarnefndar.
7. Opnun Þrumunnar fyrir 16-18 ára
Samþykkt að óska eftir því að félagsmiðstöðin Þruman verði opin á fimmtudagskvöldum fyrir ungmenni 16 til 18 ára til reynslu eftir áramót.
Fundi slitið kl. 20:45.