Fundur nr. 7
Fundur hjá ungmennaráði mánudaginn 17. mars 2014 kl. 19:00.
Mættir: Jóhann Árni Ólafsson frístundaleiðbeinandi sem skrifaði fundargerð, Nökkvi Harðarson, Elsa Katrín Eiríksdóttir, Karín Óla Eiríksdóttir, Nökkvi Nökkvason, Katrín Lóa Sigurðardóttir, Þórveig Hulda Frímannsdóttir, Lárus Guðmundsson.
Til umræðu:
1) Kosning formanns og varaformanns.
Lárus Guðmundsson bauð sig einn fram til formanns og var því kosinn og sama á við um Nökkva Harðarsson sem er þar með varaformaður.
2) Skráning á landsfund ungmennaráða á Ísafirði 10. apríl
Þórveig, Katrín og Elsa skráðu sig í ferðinna, Einnig hefur Karín Óla áhuga að fara en þarf að skoða aðstæður aðeins betur.
3) Opið í þrumunni fyrir 16-18 ára vegna verkfalls kennara.
Fundargestum fannst þetta sniðug hugmynd, en voru ekki viss um hvort krakkarnir myndu nýta sér þetta. Það væri vissulega hægt að prófa þetta í eina viku og sjá. Mikilvægt er að auglýsa það vel svo þeir sem vilji nýta sér þetta geri það. Einnig kom fram að það væri sniðugt að hafa frítt í sund fyrir 16-18 ára á meðan verkfalli stendur. Einnig kom fram hugmynd um að 16-18 ára gætu farið frítt í líkamsræktina á ákveðnum tímum þegar lítil notkun er í salnum. Allt er þetta gert til þess að virkja krakkana í verkfallinu í stað þess að loka sig inni heima hjá sér.
4) Hugmyndir úr hugmyndavinnu
1) Frístundar og menningar app, til þess að ná til unga fólksins. I þessu appi eiga að vera allir viðburðir í Grindavík og hægt væri að merkja þá viðburði sem viðkomandi langar að fara á og appið myndi svo minna viðkomandi á með smá fyrirvara.
2) Endurskoða vinnutíma unglinga í vinnuskólanum og þá sérstaklega 8.bekk. Óásættanlegt að krakkar fái svona litla vinnu, og enginn hvati til þess að mæta í hana.
3) Setja upp vegagirðingu á hættulegum vegum á Grindavíkur veginum. Tímaspursmál hvenær mjög alvarlegt slys á sér stað í ákveðnum beygjum.
4) Frítt í sund fyrir krakka á ákveðnum dögum til þess að hvetja þau til þess að mæta og nýta sundlaugina betur.
Fundi slitið 19:50