Ár 2011, fimmtudaginn 24. nóvember var haldinn 1. fundur ungmennaráðs Grindavíkur. Fundurinn var haldinn í félagsmiðstöðinni Þrumunni og hófst kl. 20:00.
Mættir:
Aðalmenn: Unnar Hjálmarsson, Kristín M. Ívarsdóttir, Katla Marín Þormarsdóttir, Nökkvi Harðarson, Rósa Sveinsdóttir, Sigurbjörg Vignisdóttir og Reynir Berg Jónsson.
Varamenn: Helga Kristinsdóttir, Valgerður Þorsteinsdóttir og Mardís Ögn Birgisdóttir. Alexandra Marý Hauksdóttir boðaði forföll. Anton Ingi Rúnarsson, Lárus Guðmundsson og Hinrik Guðbjartsson mættu ekki.
Jafnframt sat fundinn Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs sem ritaði fundargerð.
Dagskrá:
1) Hlutverk ungmennaráðs. Kristinn J. Reimarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs fór yfir hlutverk ungmennaráðs og kynnti samþykkt bæjarstjórnar Grindavíkur um ungmennaráðið.
2) Kosning formanns og varaformanns. Samkvæmt samþykkt um ungmennaráð skulu formaður og varaformaður kosnir á fyrsta fundi. Sigurbjörg Vignisdóttir og Kristín M. Ívarsdóttir buðu sig fram til formanns og var því kosið á milli þeirra. Sigurbjörg var kosin formaður með meirihluta atkvæða. Unnar Hjálmarsson bauð sig fram til varaformanns og var sjálfkjörin.
3) Uppbygging á íþróttasvæði - staðsetning félagsmiðstöðvar til framtíðar. Þegar Þruman var flutt í Kvennó 2008 var talað um að sú aðstaða væri til bráðabirgða. Nú stendur til að byggja upp aðstöðu á íþróttsvæðinu og jafnframt er fyrirhugað að byggt verði nýtt bókasafn við grunnskólann. Kristinn gerði grein fyrir að á báðum stöðum væri nú rætt um að hægt væri að koma fyrir félagsmiðstöð og ungmennaráð þyrfti að álykta um það samkvæmt beiðni frá frístunda- og menningarnefnd. Kynnti hann fyrstu hugmyndir að uppbyggingu á íþróttasvæðinu. Ungmennaráði lýst mjög vel á þær hugmyndir og telur að aðstaða til íþróttaiðkunar mun batna til muna sem er mjög jákvætt. Ungmennaráð mun gefa sér tíma til næsta fundar að meta kosti og galla þess að hafa félagsmiðstöð annars vegar á íþróttasvæðinu og hins vegar við grunnskólann.
4) Fastur fundartími. Ungmennaráð mun funda fyrsta þriðjudag í mánuði kl. 20:00
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:30
Sigurbjörg Vignisdóttir
Unnar Hjálmarsson
Reynir Berg Jónsson
Kristín M. Ívarsdóttir
Katla Marín Þormarsdóttir
Rósa Sveinsdóttir
Mardís Ögn Birgisdóttir
Helga Kristinsdóttir
Valgerður Þorsteinsdóttir