Tónleikarnir sem Alexander Birgir Björnsson og fjölskylda hans stóðu fyrir í Grindavíkurkirkju 24. nóvember síðastliðinn hafa vakið mikla athygli á landsvísu, enda ekki á hverjum degi sem jafn stór hópur landsfrægra listamanna kemur saman undir einu þaki. Víkurfréttir voru á staðnum þegar tónleikarnir voru og tóku upp efni og tóku svo einnig viðtal við Alexander og Elínu Björgu, móður hans.
,,Alexander Birgir Björnsson, þrettán ára nemandi í Grunnskóla Grindavíkur, stóð fyrir tónleikum í Grindavíkurkirkju 24. nóvember til styrktar Einhverfusamtökunum og Birtu - landssamtökum foreldra barna/ungmenna sem látist hafa fyrirvaralaust. Margir af fremstu tónlistamönnum þjóðarinnar stigu þar á stokk og var kærleikurinn ríkjandi - í anda Alexanders. Sjálfur er Alexander einhverfur og eldri bróðir hans, Kjartan Björnsson, lést er hann varð fyrir lest í Noregi árið 2010. Olga Björt hitti mæðginin Alexander og Elínu Björgu Birgisdóttur og tók saman meðfylgjandi innslag fyrir Sjónvarp Víkurfrétta."