Nýtt hótel Bláa Lónsins

  • Fréttir
  • 11. desember 2014

Í tilefni af upphafi framkvæmda vegna stækkunar upplifunarsvæðis og byggingar nýs hótels Bláa Lónsins var fyrstu hraunhellunni lyft við sérstaka athöfn þriðjudaginn 9. desember kl.15.00. Edvard Júlíusson, varaformaður stjórnar Bláa Lónsins, lyfti hraunhellunni ásamt Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. "Það er mér sannarlegt gleðiefni að vera viðstödd hér í dag þegar framkvæmdir hefjast við stækkun upplifunarsvæðis og byggingu nýs hótels. Það hefur verið gaman að fylgjast með vextinum hér í Bláa Lóninu á undanförnum árum. Hér er öll umgjörð til mikillar fyrirmyndar og sú viðbót sem er verið að byrja á í dag styrkir ferðaþjónustu á þessu svæði og í raun á Íslandi öllu. Ég óska aðstandendum Bláa Lónsins til hamingju með þennan mikilvæga áfanga." 

Stækkun og endurhönnun núverandi upplifunarsvæðis
Nýtt upplifunarsvæði verður byggt inn í hraunið vestur af núverandi lóni, og mun svæðið tengja núverandi lón og lúxushótel . Með tilkomu hótelsins verður fyrsta flokks gisting hluti af upplifun Bláa Lónsins. Í hótelinu er gert ráð fyrir 60 herbergjum, veitingastað og fjölnota fundarsal. 

Stækkun og endurhönnun núverandi upplifunarsvæðis er mikilvægur þáttur í uppbyggingunni, en lónið sjálft verður stækkað um helming. Ný og glæsileg aðstaða fyrir spa meðferðir sem boðið er upp á ofaní Lóninu er hluti stækkunarinnar.

Hluti endurhönnunar felst einnig í enn betri hitastýringu á lóninu sjálfu auk þess sem aðgengi að hreinlætisaðstöðu á lónsvæðinu verður aukið. Verkefnið er í takt við þróun Bláa Lónsins undanfarin ár þar sem jafnt og þétt hefur verið unnið að því að auka úrval og gæði þjónustu. 
Jarðvegsframkvæmdir munu hefjast í árslok 2014 og áætlað er að uppbyggingunni verði lokið vorið 2017.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins. „Uppbyggingin er táknræn fyrir áherslu Bláa Lónsins um að styrkja stöðu sína sem einstakur viðkomustaður ferðamanna á heimsvísu. Ísland þarf í auknum mæli að horfa til þess að höfða til fólks sem leitar eftir miklum gæðum í þjónustu og aðbúnaði. Bláa Lónið vill halda áfram að sinna forystu í því að leiða íslenska ferðaþjónustu enn frekar á þær brautir og stuðla þannig að aukinni samkeppnishæfni Íslands á alþjóðlegum ferðamannamarkaði."

Hönnun og arkitektúr
Sigríður Sigþórsdóttir, hjá Basalt arkitektum, er aðalhönnuður verkefnisins, en hún er arkitekt allra mannvirkja Bláa Lónsins. Sigríður hefur starfað með Bláa Lóninu í tæplega tvo áratugi eða allt frá því að undirbúningur að núverandi mannvirkjum hófst um miðjan tíunda áratuginn. 
Hönnun Sigríðar fyrir Bláa Lónið hefur vakið athygli hér heima og erlendis, ekki hvað síst fyrir samspil hins manngerða og náttúrulega umhverfis. 
„Byggingar Bláa Lónsins eru hraunbúar. Þær eru byggðar inn í hraunið, taka upp drætti og form úr náttúru staðarins .Nýjasti áfanginn er þar engin undantekning," segir Sigríður.

Upplifunarhönnun er órjúfanlegur þáttur af hönnun Bláa Lónsins og hefur teymi starfsfólks Bláa Lónsins ásamt Sigurði Þorsteinssyni og fyrirtæki hans Design Group Italia, unnið að þeim þætti hönnunarinnar. Sigurður, sem er búsettur í Milano á Ítalíu hefur unnið með Bláa Lóninu undanfarin tuttugu ár og stýrt þróun vörumerkis, ímyndar og upplifunar í samvinnu við stjórnendur Bláa Lónsins.

150 störf á framkvæmdatíma
Heildarkostnaður vegna framkvæmdarinnar nemur 6 milljörðum króna. Mannvirki Bláa Lónsins munu tvöfaldast að stærð. Heildarstækkun á núverandi- og nýju upplifunarsvæði ásamt hóteli nemur um 10.000 fm. Á framkvæmdatíma sem áætlað er að verði tvö ár munu 150 starfsmenn starfa við verkefnið. 

Eitt hundrað ný störf í ferðaþjónustu
Gert er ráð fyrir 100 nýjum störfum í tengslum við stækkun upplifunarsvæðis Bláa Lónsins og mun hluti starfsfólks hefja störf á framkvæmdatíma. Störfin verða fjölbreytt, en eins og önnur störf hjá fyrirtækinu munu þau miða að því að veita gestum Bláa Lónsins góða og fágaða þjónustu. Hluti starfanna sem verða til við stækkunina munu kalla á háskólamenntað fólk og starfsmenn með sérþekkingu á sviði heilsu og vellíðunar. Hjá Bláa Lóninu starfa um 300 starfsmenn á ársgrunni. Að framvæmdum loknum er gert ráð fyrir því að heildarstarfsmannafjöldi verði 400.

Mynd: Edvard Júlíusson, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Grímur Sæmundsen.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir