Bjargađi konu og barni eftir bílveltu á Reykjanesbraut

  • Fréttir
  • 10. desember 2014

Afar slæmt ferðaveður hefur verið á Reykjanesbraut í morgun þó eitthvað virðist vera að rætast út færðinni núna eftir hádegið. Nokkrir bílar fóru útaf veginum í morgun en Grindvíkingurinn Jóhann Ingi Ármannsson keyrði fram á einn slíkan þar sem kona og barn hennar sátu föst í bíl sem hafði oltið og voru þær fastar inni í bílnum sem endaði á hvolfi utan vegar.

Frétt Vísis frá því kl. 09:00 í morgun:

,,Lögreglan á Suðurnesjum varar við miklu hvassvirði og mjög slæmu skyggni á Reykjanesbraut. Þar er nú allt niður í tveggja metra skyggni og eru björgunarsveitir í viðbragðsstöðu.

Jóhann Ingi Ármannsson átti leið um brautina nú rétt fyrir fréttir og kom hann að bílveltu. Hann segir ekkert ferðaveður á svæðinu.

„Aðstæður eru bara þannig að hér er bara eins til tveggja metra skyggni," segir Jóhann í samtali við fréttastofu.

„Það er fljúgandi hálka hér á brautinni og þrír ef ekki fjórir bílar farnir útaf. Ég kom að einum sem var á hvolfi rétt fyrir utan veg. Í bílnum var kona og barn sem ég náði að moka út úr bílnum."

Jóhann segir að þau hafi verið föst inni í bílnum.

„Það er bara ekkert ferðaveður á brautinni, svo einfalt er það," segir Jóhann en fólkið meiddist ekki við við atvikið."

Mynd: Vísir.is

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir