Í dag, sunnudaginn 7. desember, verður aðventustund í Grindavíkurkirkju kl. 18:00. Strax að henni lokinni, eða kl. 19, verður kveikt á jólatrénu á Landsbankatúninu og því hefur þessari skemmtilegu stund verið seinkað um klukkustund svo báðir viðburðirnir fái notið sín. Dagskráin í dag er því þessi:
Kl. 18:00 Aðventustund í Grindavíkurkirkju.
Barnakór kirkjunnar flytur helgileik.
Grunnskólabörn taka þátt i helgileiknum. Margrét Rut Reynisdóttir les jólasögu.
Kl. 19:00 Kveikt á jólatrénu á Landsbankatúninu.
• Tónlistaratriði með nemendum Tónlistarskólans
• Söngnemendur Tónlistarskólans flytja jólalög.
• Kristín María Birgisdóttir forseti bæjarstjórnar flytur ávarp.
• Stekkjastaur og kjötkrókur mæta á svæðið og skemmta börnunum.
• Skoppa og Skrítla og vinir með jólaskemmtun fyrir börn á öllum aldri. Þær vinkonur munu einnig kveikja á jólatrénu.
Unglingadeildin Hafbjörg býður heitt súkkulaði og piparkökur fyrir gesti, ókeypis.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna með gleði og jólastemmningu í hjarta.