Kveikt verður á jólatré Grindavíkurbæjar við Landsbankatúnið laugardaginn 6. desember kl. 18:00. Góðir gestir koma í heimsókn en dagskráin er eftirfarandi:
• Tónlistaratriði með nemendum Tónlistarskólans
• Söngnemendur Tónlistarskólans flytja jólalög.
• Kristín María Birgisdóttir forseti bæjarstjórnar flytur ávarp.
• Stekkjastaur og kjötkrókur mæta á svæðið og skemmta börnunum.
• Skoppa og Skrítla og vinir með jólaskemmtun fyrir börn á öllum aldri. Þær vinkonur munu einnig kveikja á jólatrénu.
Unglingadeildin Hafbjörg býður heitt súkkulaði og piparkökur fyrir gesti, ókeypis.
Grindvíkingar eru hvattir til þess að fjölmenna með gleði og jólastemmningu í hjarta.