Falla lalla la, la la la la.
Framundan er skemmtilegur tími, skreyta þarf skólann fyrir jólin og hver bekkur er búinn að ákveða hvernig stofan þeirra skal skreytt. Myndum er varpað upp á vegg, teiknað, litað og klippt. Margir kílómetrar af músastigum eru framleiddir og nýjasta æðið er að búa til gluggafilmur með súrmjólk. Svona var stemmingin hjá elsta stigi á fyrsta skreytingadeginum í gær, allir svo niðursokknir í föndrið að enginn hafði tíma til að líta upp fyrir ljósmyndarann.