Aðgerðastjórn björgunarsveita á Suðurnesjum beinir þeim tilmælum til fólks að „teipa" rúður að innan vegna hættu á að þær brotni. Mikið álag er á björgunarsveitum í augnablikinu og því er fólk beðið um að fara að þessum fyrirmælum. Fólk er beðið um að deila þessum skilaboðum.
Mikið álag verður á hafnarmannvirkjum í Sandgerði og Grindavík í kringum miðnætti í kvöld en þá eru flóð suðvestanlands. Spáð er allt að 10 metra ölduhæð í kvöld og nótt við suður- og vesturströndina.
Brýnt er fyrir mönnum að hafa varann á og huga að eigum sínum fyrr en síðar.