Í 7. og 8. bekk er valáfangi í boði þar sem að nemendur fá fræðslu um hárumhirðu, kennslu hvernig á að búa til sína eigin hár og andlitsmaska, hanna sitt eigið hárskraut og margt fleira.
Rósa Kristín hársnyrtimeistari kennir áfangann og í honum eru stúlkur sem hafa brennandi áhuga á ýmsu sem tengist húð og hárumhirðu og vilja fræðast meira um hvað þær geta gert sjálfar.
Á þessari önn hafa þær meðal annars búið til hármaska, búið til hárskraut, gert handsnyrtingu og búið til heimagerða djúpnæringu fyrir hárið en það er hægt að búa til góða næringu með ýmsu sem leynist í eldhúsinu.
Sara Símonardóttir eigandi Betra Hárs kíkti í heimsókn til stelpnanna þar sem hún fór yfir nokkrar léttar greiðslur sem stelpurnar geta gert sjálfar fyrir fínni viðburði en sú heimsókn vakti mikla lukku enda þurfa fínar greiðslur ekki að vera flóknar.