Fjörugur föstudagur á Hafnargötunni 28. nóvember

  • Fréttir
  • 26. nóvember 2014

Þá er komið að því að halda hinn árlega Fjöruga föstudag á Hafnargötunni þann 28. nóvember næstkomandi. Er hann haldinn í fjórða sinn þetta árið og alltaf fjölgar þeim fyrirtækjum sem taka þátt og  gerir það þennan dag bara enn skemmtilegri og fjölbreyttari. Dagskráin í ár er ótrúlega fjölbreytt eins og sjá má í bæklingnum sem dreift hefur verið í hús bæjarins og fylgir hér að neðan.

Jólasveinar verða á ferðinni á Hafnargötunni frá klukkan 17:00 og eiga kannski eitthvað gott í pokanum fyrir góðu börnin.
Hinir ýmsu þjónustu- og verslunaraðilar við Hafnargötuna bjóða upp á góð tilboð og bjóða einnig fólk velkomið að kíkja í heimsókn og sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða. Tónlist, kynningar, piparkökur, jólaglögg, konfekt, fish´n´chips og margt fleira í boði.

Í Hafnargötunni eru ein 29 fyrirtæki og mun gatan án vafa iða af mannlífi. Gestir eru beðnir um að sýna gangandi vegfarendum tillitssemi og leggja bílum t.d. fyrir aftan Slökkviliðsstöðina til að tryggja öryggi þeirra sem verða á gangi á milli fyrirtækja.

Kynningarbæklinginn má sækja hér.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir