Ágætu foreldrar/forráðamenn nemenda í Grunnskóla Grindavíkur.
Skólastjórnendur bjóða ykkur til „morgunskrafs" á kaffistofu starfsmanna í Hópsskóla, föstudaginn 28. nóvember, kl. 8:00 - 8:40. Hugmyndin er að setjast niður yfir kaffibolla og eiga saman óformlegt spjall um skólastarfið. Markmið með „morgunskrafi" er að auka tengsl heimila og skóla og gefa foreldrum/forráðamönnum tækifæri til að ræða við stjórnendur skólans um áherslur og stefnur.
Foreldrar skrifa á miða 3 - 5 atriði sem þeir eru ánægðir með í starfi skólans og 3-5 atriði sem má bæta. Við hvetjum foreldra til að mæta og taka þátt í að móta með okkur metnaðarfullt skólastarf.
Fyrir hönd stjórnenda Grunnskóla Grindavíkur
Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri