Málefnafundur Suðurnesjamanna verður haldinn laugardaginn 15. nóvember í félagsheimili Framsóknar að Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ kl. 10:30 og lýkur kl. 12:00.
Framsóknarmenn á Suðurnesjum munu fara yfir áherslur sínar í málefnavinnu fyrir væntanlegt flokksþing Framsóknarmanna.
Þetta er þitt tækifæri til að hafa áhrif á stefnu Framsóknar á landsvísu. Vilt þú nýjan landspítala? Viltu breytt námslánakerfi? Vilt þú verðtrygginguna í burtu? Það er á fundum sem þessum sem stefna flokksins verður til. Höfum áhrif og tökum þátt!