Þarftu að taka til í geymslunni eða fataskápunum? Viltu ekki koma gamla dótinu/hlutunum/fötunum í verð og vera með borð á kompusölu helgina 15. og 16. nóvember? Vertu með í að mynda skemmtilega markaðsstemningu fyrir jólin. Kompusalan verður haldin á neðri hæð Veitingahússins Brúarinnar, Hafnargötu 26 í Grindavík, frá kl. 13-16 báða dagana.
Hægt er að leigja bás annan daginn eða báða dagana.
Leiga fyrir einn dag er 3000kr en tvo 4000kr.
Verði undirtektir góðar verða fleiri kompusöluhelgar fram að jólum.
Bókamarkaður er á staðnum, ágóði rennur allur til Grindavíkurkirkju vegna jólaúthlutunar 2014
Pantanir á borðum má gera hjá:
Ólafur 894-2013 / Veitingahúsið Brúin 426-7080
Með von um góðar undirtektir og skemmtilega markaðsstemningu